Færeyjar.is
 

 
Blaðrað um Færeyjar og fleira, þó ekki einungis á Færeysku
 
 
 

Íslendingur.is

 
 
18.8.04
 
"Íslendingar þið hafið þegar heyrt gleði boðskapinn."

Óþarfa samkeppni hefur vikið fyrir samstarfi.

Óskabörnin og keppendur til margra ára komnir í eina sæng. Leiðir þetta til samstarfs á fleiri sviðum???
Gaman verður að fylgjast með framhaldinu

14.8.04
 
Austurríki er vestrænt lýðræðisríki. Þar finnst meðal annars Þjóðarflokkur ÖVP sem hefur aukið frelsi borgaranna all verulega með verkum sínum. Einnig finnst þar Frelsisflokkur sem hefur lagt mikla áherslu á þjóðerni en fjallar minna um frelsi. Ætli eitthvað svipað sé í dælunum hér á landi. Að menn geri annað en þeir ætli sér, og sama hvað Bryndís Hlöðversdóttir sagði í Háskólanum á Akureyri á fundi um ESB, þegar Birgir Tjörvi sagði það samband hvorki vera sérlega sexý né heillandi á annan hátt, sagði Bryndís eitthvað á þá leið að Evrópusambandið væri gott samband [ég held þó að það skili ekki sér í betra símasambandi út í heim eða á milli hennar og Eiríks Bergmans, því Síminn stendur sig svo vel] Gott ef ekki þá talaði EBE um að ESB væri heillandi valkostur. Hvort sem að ESB sé í raun gott samband eða vilji gera Evrópu að betri stað þá er vegurinn til heljar varðaður góðum ásetningi. [Án þess að maður eyði of miklum tíma í tilvitnanir]

Nú á að kjósa á Héraði og verða Egilsstaðir og Fellabær á Fljótsdalshéraði þá stærsti byggðakjarni á Austurlandi í einu sveitarfélagi. Hinsvegar finnst mér þetta hafa verið svona í gegnum tíðina Tókýó - Yokohama stemmning. Tvö þéttbýli í raun eitt en stjórnsýslulega aðskilin. Í sumar lagði Kristján Þór Júlíusson Hrísey undir sig, nú er Soffía Lárusdóttir komin í kappið um þriðja þingsæti flokksins í næstu Alþingiskosningum. Mun Kristján leggja Mývatnssveit næst að fótum sér?? ?

11 manns verða í nýrri sveitarstjórn, íbúi á Héraði sagði einu sinni þegar sveitarstjórnarmönnum var fjölgað í hans hrepp: "Þeim mun verr gefast heimskra manna ráð eftir því sem fleiri eru saman komnir"

Að gefnu tilefni þá vil ég segja að ég er ekki í Heimdalli. mér þykir það leiðinlegt að fólk sem er að keppast skuli fara út fyrir raðir hugsanlegra kjósenda til að leita eftir stuðningi. reyndar er ágangurinn minni nú en þegar Magnús Þór og Þórlindur kepptust um að verða kosnir formenn Heimdallar. símtölin eru færri. Mér finnst samt þetta vera jafn kjánalegt og ef íbuar sveitarfelagsins Hornafjarðar væru spurðir að því hvort þeuir styddu Jónatan Mozfelt til formennsku í Grænlensku heimastjórnnni.

8.8.04
 
Óvissa um útlendingana

Nokkur óvissa ríkir um útlendingana tvo...

Það er nýji pólverjinn og síðasti brasilíumaðurinn sem um er rætt.

 

 
   
  -->This page is powered by Blogger, the easy way to update your web site.  

Heim  |  Gamalt